flugfréttir
Boeing staðfestir endalokin á 747 og fresta 777X til 2022
- Hætta framleiðslu á Boeing 747-8 árið 2022
Boeing 747-8 júmbó-þota í litum Lufthansa við afhendingarmiðstöð Boeing í Everett
Boeing staðfesti í dag endalok framleiðslu júmbó-þotunnar auk þess sem flugvélaframleiðandinn tilkynnti að afhendingum á nýju Boeing 777X breiðþotunni verður frestað til ársins 2022.
Þetta kom fram í dag í skilaboðum til starfsmanna þar sem segir að framleiðslu á Boeing 747-8 verður hætt af eftir tvö ár og verði því engar fleiri slíkar þotur smíðaðar eftir árið 2022 og endar þar með
framleiðsla júmbó-þotunnar sem staðið hefur yfir í 52 ár í dag.
Þá hefur Boeing einnig staðfest að afhendingar á fyrstu Boeing 777X þotunni, arftaki Boeing 777, hefjast
ekki fyrr en árið 2022 og frestast því um eitt ár en til stóð að afhenda fyrsta eintakið á næsta ári til Lufthansa
en nú þegar er búið að smíða fyrsta eintakið fyrir Lufthansa og einnig fyrstu Boeing 777X þotuna fyrir Emirates.
Boeing mun ekki smíða fleiri Boeing 747-8 júmbó-þotur eftir árið 2022
Seinkanir vegna vandamála með GE9X hreyfilinn frá General Electrics hafa þegar sett strik í reikninginn
sem varð til þess að Boeing 777X flaug ekki sitt fyrsta flug fyrr en í janúar á þessu ári en til stóð að hún
myndi taka þátt í flugsýningunni í París í fyrra.
326 milljarða króna tap á öðrum árshelmingi
Boeing kynnti í dag afkomu fyrirtækisins eftir annan ársfjórðung þessa árs og kemur fram að framleiðandinn
tapaði 2.4 milljörðum bandaríkjadala sem samsvarar 325 milljörðum króna og má rekja tapið
að stórum hluta til COVID-19 heimsfaraldursins.
Tapið er þó 500 milljónum lægra en á sama tíma í fyrra þegar Boeing tilkynnti um
2.9 milljarða króna tap frá apríl fram til júní sem mátti þá rekja til kyrrsetningu á Boeing 737 MAX þotunum.
Boeing tilkynnti í dag um 2.4 milljarða króna tap eftir annan ársfjórðunginn
Dave Calhoun, framkvæmdarstjóri Boeing, segir að afleiðingar kórónuveirufaraldursins séu
að hafa viðtækari áhrif á flugiðnaðinn en gert var ráð fyrir sem bitnar á öllum fyrirtækjum innan
flugsins og gæti Boeing þurft að segja upp enn fleira starfsfólki en framleiðandinn hefur
nú þegar sagt upp 16.000 manns sem samsvarar 10 prósent alls starfsfólks fyrirtækisins.
Einnig segir í tilkynningu frá Boeing að dregið verður úr framleiðsluafköstum á næstum því öllum
flugvélategundunum sem Boeing framleiðir og m.a. á Boeing 737 MAX, Dreamliner og Boeing 777 en
framleiðslan á Boeing 767 og Boeing 747-8 mun að öllum líkindum halda sér með sama sniði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.