flugfréttir

Hætta að fljúga á milli London City og New York

- British Airways tekur Airbus A318 þotuna úr umferð

31. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 16:21

Airbus A318 þota British Airways á London City flugvellinum

British Airways hefur tilkynnt að félagið ætli að hætta með Airbus A318 þoturnar og mun félagið með því hætta að fljúga beint áætlunarflug á milli London City flugvallarins og Kennedy-flugvallarins í New York í Bandaríkjunum.

Móðurfélagi IAG (International Airlines Group) tilkynnti þetta á sama tíma og afkoma fyrirtækisins var kynnt í gær og kemur fram að þessi tíðindi koma fáum á óvart í skugga ástandsins í flugiðnaðinum og fækkun viðskiptafarþega.

British Airways hefur boðið viðskiptafarþegum að fljúga beint frá London City til New York og hafa þeir með því náð að koma sér frá öllu því umstangi sem fylgir því að fara í gegnum Heathrow-flugvöllinn auk þess sem meiri lúxus fylgir því að ferðast um borð í Airbus A318 þotunum.

Félagið byrjaði að fljúga á milli London City og New York JFK árið 2009 en Airbus A318 þoturnar koma eingöngu með stórum Business Class sætum og eru 32 slík sæti um borð í vélunum.

British Airway hafði tvær Airbus A318 þotur sem notaðar voru á þessari flugleið en árið 2017 tók félagið aðra vélina úr umferð og seldi hana til flugfélagsins Titan Airways.

Félagið hætti að fljúga með Airbus A318 á milli London City og New York JFK í mars á þessu ári vegna kórónuveirufaraldursins og stóð til að hefja flugið að nýju eftir faraldurinn en nú er útséð um að því verði haldið áfram.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga