flugfréttir
Stofna nýtt flugfélag í Ástralíu með Boeing 757 og 767 þotum
Nýja flugfélagið stefnir á að hefja starfsemi sína snemma á næsta ári og verða höfuðstöðvarnar á flugvellinum í Brisbane í Ástralíu
Nýtt flugfélag, sem verið er að stofna í Ástralíu, leitar nú að starfsfólki við ýmiss störf og þar á meðal að yfirflugstjóra með réttindi á þotur af gerðinni Boeing 757 og Boeing 767 þotur.
Þetta kemur fram á ferðavefsíðunni Travel Weekly og segir að flugfélagið
nýja verði með höfuðstöðvar fyrir starfsemina á flugvellinum í borginni Brisbane.
Ekki eru gefnar upp ítarlegar upplýsingar varðandi nýja flugfélagið og kemur
ekki fram hvað flugfélagið mun heita en á dögunum var sett inn
atvinnuauglýsing á vefsíðuna Complete Aviation Solutions þar sem leitað er eftir starfsfólki í nokkrar stöður.
Fram kemur að flugfélagið verði með þotur af gerðinni Boeing 757 og Boeing 767 þotur sem verða notaðar í millilandaflugi frá Brisbane og er áætlað að félagið hefji starfsemi sína snemma árið 2021.
Þá leitar flugfélagið nýja einnig að yfirmanni til þess að sjá um flughæfni
flugflotans og yfirmann yfir verkefnastjórnun í viðhaldsdeild.
Ekki kemur fram hvort að flugfélagið muni sinna farþegaflugi eða hvort
um fraktflugfélag sé að ræða en orðrómur er uppi um að hér sé á ferðinni
fraktflugfélag fyrir Prime Air sem flýgur vörum á vegum vefverslunarrisans
Amazon.com
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.