flugfréttir
SpiceJet tryggir sér pláss á London Heathrow
Boeing 737-800 þota SpiceJet í flugtaki
Indverska flugfélagið SpiceJet hefur tryggt sér lendingar- og afgreiðslupláss á Heathrow-flugvelli og mun félagið hefja daglegt flug til London frá og með 1. september.
SpiceJet fær tímabundið sumarpláss á London Heathrow sem endar þann 23. október
en verið er að vinna að því að framlengja leyfið og fá úthlutað plássi í beinu framhaldi
yfir vetrartímann.
Ahay Singh, framkvæmdarstjóri SpiceJet, segir að þetta sé stund sem að flugfélagið
hafi beðið lengi eftir en SpiceJet var í hópi fleiri indverskra flugfélaga sem voru til skoðunar varðandi úthlutun á plássi á Heathrow-flugvellinum og varð SpiceJet fyrir valinu.
Air India er í dag eina indverska flugfélagið sem flýgur til London Heathrow
en indverska flugfélagið Jet Airways flaug einnig til London en það flugfélag hætti starfsemi sinni í fyrra.
Ekki kemur fram frá hvaða indversku borg SpiceJet mun fljúga frá til London
en að öllum líkindum mun félagið notast við nýju Airbus A330-900neo
þotuna sem félagið hefur tekið á leigu frá portúgölsku flugvélaleigunni Hi Fly.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.