flugfréttir
Boeing 747 rakst með þrjá hreyfla ofan í braut í lendingu
Boeing 747-400 fraktþota frá Atlas Air
Júmbó-fraktþota af gerðinni Boeing 747-400 rakst með þrjá hreyfla ofan í flugbraut í lendingu á Pudong-flugvellinum í Shanghai á dögunum.
Þotan, sem er frá flugfélaginu Atlas Air, var að lenda í Shanghai þann 5. ágúst sl. eftir flug frá Seoul í Suður-Kóreu
en mikill hliðarvindur var á braut er atvikið átti sér stað.
Fram kemur að þotan hafi rekist ofan í flugbrautina með hreyfil nr. 1, 2 og 4 en flugvélin yfirgaf flugbrautina
eftir lendingu með eðlilegum hætti.
Samkvæmt veðurupplýsingum á Pudong-flugvelli þegar atvikið átti sér stað mældist vindur um 23kt (hnútar) með
hviðum upp í allt að 38 hnúta og er talið að það hafi orsakað atvikið.
Flugvélin, sem ber skráninguna N408MC, er enn stödd í Shanghai í dag þann 7. ágúst og hefur henni ekki verið flogið eftir atvikið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.