flugfréttir
Vara við sprungum í Trent XWB hreyflum á A350
Trent XWB hreyfill á Airbus A350 þotu
Hreyflaframleiðandinn Rolls-Royce sendi í dag frá sér tilkynningu þar sem varað er við mögulegum sprungum í hreyflablöðum á Trent XWB hreyflinum sem knýr áfram nýju Airbus A350 þoturnar.
Sprungur hafa komið í ljós á nokkrum XWB-84 hreyflum sem uppgötvaðist við reglubundna skoðun á 20 hreyflum af þessari gerð í síðasta mánuði og er talið að sprungur gætu mögulega komið fram á hreyflum
sem eru orðnir eldri en 4-5 ára.
Trent XWB hreyfillinn var kynntur til leiks árið 2015 og eru um 800 slíkir hreyflar í umferð í dag. Þetta er annar hreyfillinn frá Rolls-Royce sem upp kemur vandamál með sprungur en í nokkur ár hefur verið töluvert vandamál með Trent 1000 hreyfilinn sem
framleiddur er fyrir Dreamliner-þoturnar.
Rolls-Royce hefur sannfært fjárfesta að ekki sé um stórt vandamál að ræða og telur hann að áhrifin fyrir flugfélög og flugrekendur sem hafa Airbus A350 þoturnar
í flota sínum verði tiltölulega lítil.
Frá því að Airbus A350 þoturnar komu á markaðinn árið 2015 þá hefur áreiðanleiki Trent XWB hreyflanna mælst 99.9 prósent.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.