flugfréttir
370 flugfreyjum sagt upp hjá Sunclass Airlines
Nafni Thomas Cook Scandinavia var í október í fyrra breytt í Sunclass Airlines
Danska leiguflugfélagið Sunclass Airlines hefur sagt upp 200 flugfreyjum og flugþjónum í Danmörku og um 170 í Svíþjóð og eru því alls 370 starfsmenn hjá félaginu sem verður sagt upp þann 20. ágúst næstkomandi.
Sunclass Airlines er nýtt nafn sem tekið var upp fyrir flugfélagið Thomas Cook Scandinavia og
var nafninu breytt í október í fyrra eftir að Thomas Cook varð gjaldþrota.
Í fréttatilkynningu frá Sunclass Airlines, sem er í eigu Petter Stordalen, segir að félagið sjái
engan annan leik í stöðunni þar sem leiguflugsmarkaðurinn hefur orðið verulega fyrir barðinu
á kórónaveirufaraldrinum en að segja upp starfsfólki.
Reynt var eftir mesta megni að komast hjá uppsögnum en þar sem viðræður milli stjórnar
félagsins og verkalýðsfélaga gengu ekki upp þá neyðist félagið til að grípa til þeirra úrræða
sem vonast var til að þyrfti ekki að grípa til.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.