flugfréttir
EASA varar við aðskotahlutum í stemmuröri eftir geymslu
- Fara fram á að „pitot tube“ rör séu skoðuð eftir langtímageymslu
„Pitot tube“ rör á Boeing 737 þotu
Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) hefur gefið frá sér tilkynningu með fyrirmælum varðandi þau áhrif sem langtímageymsla á flugvélum getur haft í för með sér en margar flugvélar eru nú í geymslu vegna COVID-19 heimsfaraldursins.
Tilmælin varða stemmurör („pitot tube“) á flugvélum sem gætu stíflast eftir langa geymslu
og voru tilmælin gefin út vegna atviks þar sem flugmenn á flugvél tilkynntu um óáreiðanlegar upplýsingar um flughraða og flughæð á mælum í stjórnklefa eftir að þeir
flugu vélinni frá flugvelli þar sem hún hafði verið geymd í einhvern tíma vegna heimsfaraldursins.
Talið er að mælarnir hafi sýnt rangar upplýsingar vegna aðskotahluta sem voru bæði í rörum
sem mæla kyrruþrýsting og áfallsþrýsting.
EASA mælir með því að flugrekstraraðilar framkvæmi skoðun og þrif á stemmurörum áður
en flugvélum er flogið frá þeim flugvöllum þar sem þær hafa verið í langtímageymslu.
Stofnunin segir að aðskotahlutur getur leynst í stemmuröri þrátt fyrir að öryggishlíf hafi verið
sett utan um rörið eins og vanalega er gert þegar flugvél er sett í geymslu eða er geymd
á flugvelli yfir nóttu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.