flugfréttir

Þrír hjá SAS hafa fallið á áfengisprófi í Stafangri í sumar

- Flugstjóri dæmdur í 4 mánaða fangelsi fyrir að hafa flogið undir áhrifum

14. ágúst 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:19

Boeing 737-800 þota frá SAS á Sola-flugvellinum í Stafangri

Þrjú tilvik hafa komið upp frá því í júní þar sem flugmenn og flugfreyjur hjá SAS hafa fallið á áfengisprófi á flugvellinum í Stafangri í Noregi.

Flugmaður einn hjá SAS (Scandinavian Airlines) hefur verið dæmdur í 4 mánaða fangelsi eftir að hann féll á áfengisprófi eftir að hann hafði flogið tvö áætlunarflug í júní í sumar.

Flugmaðurinn, sem var flugstjóri í báðum flugferðunum, flaug fyrst frá Kristiansand til Oslóar þann 11. júní sl. og því næst frá Osló til Stavanger þar sem hann gekkst undir áfengispróf.

Í ljós kom að áfengismagn í blóðinu hans mældist yfir 0.5 prómill. Flugmaðurinn játaði á sig brotið og var hann í kjölfarið rekinn frá SAS.

Fram kemur að SAS sýni enga umburðarlyndi gagnvart atvikum þar sem áfengismagn mælist í blóði meðal starfsmanna og séu viðbrögð flugfélagsins mjög skýr í þeim tilfellum.

Þann 8. júlí féll flugfreyja hjá SAS á áfengisprófi á Sola-flugvellinum í Stafangri áður en hún fór um borð til að sinna starfi sínu í flugi til Kaupmannahafnar.

Tíu dögum síðar, eða laugardaginn 18. júlí, var svo annar flugmaður látinn fara niður á lögreglustöð vegna gruns um ölvun en sá var flugmaður hjá flugfélaginu CityJet sem annast meðal annars flug fyrir SAS.

Sá flugmaður féll á blástursprófi og var hann látinn gangast undir ítarlegra próf þar sem í ljós kom áfengismagn í blóði hans.

Sá flugmaður átti að fljúga frá Stafangri til Oslóar og varð fimm tíma seinkun á fluginu þar sem þurfti að kalla til annan flugmann sem var á bakvakt.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga