flugfréttir

Airbus setur þróun á A321XLR á fullt skrið

- Telja að A321XLR sé sú þota sem flugfélögin þurfa eftir heimsfaraldurinn

14. ágúst 2020

|

Frétt skrifuð kl. 10:49

Tölvugerð mynd af Airbus A321XLR þotunni

Sagt er að Airbus sé að setja allt á fullt með þróun á nýju Airbus A321XLR þotunni sem verður enn langdrægari útgáfa af A321LR og verður ferlinu flýtt á meðan dregið hefur úr afköstum í smíði á öðrum tegundum af A320 þotum.

XLR stendur fyrir „extra long range“ og verður þotan ein langdrægasta farþegaþota í heimi í flokki þeirra flugvéla sem koma með einum gangi.

Airbus kynnti A321XLR þotuna formlega til leiks á flugsýningunni í París í fyrra og var flugvélaframleiðandinn komin með pantanir í 200 eintök strax á þriðja degi sýningarninnar og hafa í dag verið pöntuð yfir 450 eintök af þotunni.

Mjög mikill áhugi hefur verið fyrir A321XLR meðal flugfélaga og sérstaklega meðal þeirra sem hafa verið í leit að meðalstórri farþegaþotu sem getur flogið álíka langt flug og breiðþotur en samt tekið færri farþega.

Airbus telur að COVID-19 heimsfaraldurinn eigi ekki eftir að hafa mikil áhrif á þær pantanir sem gerðar hafa verið í A321XLR þar sem að þotan er einmitt góður kostur miðað við aðstæðurnar í dag þar sem enn hagkvæmara er að fljúga þotunni langar leiðir með færri farþega en breiðþotur sem gætu þurft næstu árin að fljúga með færri farþega til fjarlægari áfangastaða.

Airbus A321XLR hefur verið pöntuð af 24 flugfélögum og þar á meðal American Airlines, JetBlue og United Airlines og telur Airbus að A321XLR gæti orðið aðal mjólkurkúin fyrir fyrirtækið næstu árin og hjálpað Airbus í gegnum erfiða tíma til ársins 2022.

„XLR verður frábær flugvél á meðan við erum að ganga í gegnum þessa erfiðu tíma“, segir Guillaume Faury, framkvæmdarstjóri Airbus.

Airbus hefur dregið úr afkastagetu í framleiðslu á flestum öðrum tegundum sem smíðaðar eru og þar á meðal verða færri Airbus A220 þotur framleiddar en á sama tíma stendur til að fjölga starfsfólki í XLR-deildinni og taka inn fleiri verkfræðinga, hönnuði auk fleiri starfsmanna.

Airbus A321XLR á að koma á markaðinn árið 2023

Airbus segir að XLR sé nú í forgangi hjá framleiðandanum og verður ekkert til sparað þrátt fyrir ástandið í flugheiminum vegna kórónuveirufaraldursins þar sem þotan gæti orðið mun vinsælli þau ár sem taka við eftir faraldurinn þar sem flugrekstur með breiðþotum verður síðastur til þess að taka við sér á ný.

Flugsérfræðingar segja að A321XLR sé í mjög sterkri stöðu ef hún væri tilbúin í dag þar sem hún hefur engan sinn líka á markaðnum og sérstaklega þar sem Boeing ákvað að koma ekki með sparneytnari útgáfu á markaðinn af Boeing 757.

Þá gæti þota eins og A321XLR verið besti kosturinn fyrir flugfélög fyrstu árin eftir að þau jafna sig af COVID-19 faraldrinum þar sem rekstur flugfélaga verður að öllum líkindum enn of viðkvæmur til þess að fljúga breiðþotum milli þeirra fjarlægu áfangastaða sem A321XLR þotan gæti flogið á milli.

Airbus stefnir að því að fyrsta A321XLR þotan fari í lokasamsetningu árið 2021 og er gert ráð fyrir að afhendingar hefjist árið 2023.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga