flugfréttir
Panta tvær A321LR þotur fyrir þýska flugherinn
- Airbus Corporate Jet (ACJ) fær pöntun frá Lufthansa Technik
Airbus A321LR þoturnar tvær verða notaðar af þýska flughernum
Airbus Corporate Jet (ACJ), dótturfélag Airbus, hefur fengið pantanir í tvær Airbus A321LR þotur frá Lufthansa Technik.
Þoturnar tvær, sem verða starfræktar af þýska flughernum, verða sérstaklega útbúnar fyrir sérhæfð
verkefni og verða þær til að mynda notaðar til þess að flytja herlið á milli staða, til að sinna
sjúkraflugsverkefnum og til að flytja lækningavörur.
Pöntunin í Airbus A321LR er gerð á vegum þýsku ríkisstjórnarinnar og hefur Lufthansa Technik
alls pantað fimm þotur frá Airbus Corporate Jet en áður hafði þýska ríkið pantað
þrjár ACJ350-900 þotur.
A321LR þoturnar munu geta tekið 163 farþega, allt að sex sjúklinga í gjörgæslurými
ef svo ber undir auk 12 sjúklinga en það fer þó allt eftir útfærslu hverju sinni.
Airbus Corporate Jets hefur í dag um 500 viðskiptavini sem hafa pantað einkaþotuútgáfu af þeim flugvélum sem Airbus framleiðir og býður
framleiðandinn einnig upp á einkaþotuútgáfu af Airbus A350 þotunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.