flugfréttir
FAA varar við breytingum á flugvélum til fallhlífarstökks
- Varasamt að fjarlægja hægra sætið auk stýrisins
Fyrirmælin ná til þeirra fyrirtækja og aðila vestanhafs sem fljúga með fallhlífarstökkvara
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa gefið frá sér yfirlýsingu til þeirra aðila og fyrirtækja sem sjá um að fljúga með fallhlífarstökkvara þar sem varað er við því að breyta flugvélum t.a.m. með því að fjarlægja hægra sætið úr stjórnklefanum án þess að það uppfylli öryggiskröfur.
Sumir aðilar sem fljúga með fallhlífarstökkvara hafa reynt að koma sem flestum stökkvurum
fyrir um borð í flugvélum og hafa sumir brugðið til þess ráðs að fjarlægja hægra sætið
úr stjórnklefanum.
Vitnað er í atvik sem átti sér stað árið 2008 er fallhlífastökkvari lést eftir að hafa fengið stöng í höfuðið þar sem hann sat á gólfinu við hlið flugmannsins en búið var að fjarlægja stýrið sjálft
af stönginni sem gekk út er flugmaðurinn tók stýrið að sér sem hreyfir hæðarstýrið á stélinu.
Stjórnklefi um borð í Cessnu þar sem búið er að fjarlægja hægra sætið
Þá segir frá skoðun sem öryggisfulltrúi frá FAA framkvæmdi árið 2009 á flugvél af gerðinni
Cessna P206A Stationair þar sem í ljós kom að búið var að fjarlægja hægra sætið
úr vélinni auk þess sem stýrið hægra megin hafði verið tekið af stönginni og tennisbolti settur á endann
á stýrisstönginni.
FAA segir að það geti verið mjög varasamt að fjarlægja hægra sætið auk hægra stýrisins
til að koma fleiri fallhlífarstökkvurum fyrir í vélina þar sem slíkt getur undir vissum kringumstæðum
hindrað hreyfigetu stýrisins hjá flugmanninum
Fram kemur að fallhlífarstökkvari sem situr á gólfinu við hlið hans með stöngina sem gengur inn og út
á víxl, og þá sérstaklega ef upp koma ófyrirsjáanlegar aðstæður sem kalla á mjög
ákveðna notkun á stýrinu, getur skap mikla hættu.
Margir aðilar sem fljúga með fallhlífarstökkvara hafa einnig fjarlægt hægra sætið og komið skilrúmi fyrir til þess að ganga úr skugga um að fallhlífarstökkvari sem situr við hlið flugmannsins sé ekki of nálægt stýrinu og mælaborðinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.