flugfréttir
Staða máls vegna flugslyss á Haukadalsmelum
Slysið átti sér stað þann 27. júlí árið 2019
Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) hefur gefið frá sér skýrslu með stöðu á máli er varðar flugslys sem átti sér stað þann 27. júlí í fyrra er lítil flugvél brotlenti í flugtaki á Haukadalsmelum.
Slysið varðar litla einshreyfils flugvél af gerðinni Piper PA-12 Replica sem bar skráninguna
TF-CRZ og er slysið enn til rannsóknar.
Fram kemur að flugmaður vélarinnar hugðist fljúga og æfa lendingar fyrir lendingarkeppni sem
skipulögð var síðar um daginn.
Að sögn sjónarvotta klifraði flugvélin mjög bratt í flugtakinu með mikið afl á hreyflinum. Klifurhorn flugvélarinnar hélt áfram
að aukast uns hún virtist hanga á hreyflinum.
Því næst var aflið dregið af hreyflinum, flugvélin féll niður á hægri vænginn og spann einn hring til jarðar.
Á vettvangi mátti sjá að aftari stýrisstöng fyrir hæðar- og hallastýri flugvélarinnar var fest aftur við aftara sætið með öryggisbelti þess.
Rannsóknin beinist að notkun sætisbeltis sem stýrisláss, undirbúningi flugs, fyrirflugskoðun sem og gátlistum og notkun þeirra.
TF-CRZ var af gerðinni Piper PA-12 Replica
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.