flugfréttir
Hvetja Evrópulönd til að mynda sér stefnu í ferðatakmörkunum
- Vilja samræmt átak tafarlaust til að eyða óvissunni fyrir flugfélög
Breiðþotur á Heathrow-flugvelli áður en kórónaveirufaraldurinn skall á
Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) hafa gefið frá sér skýrslu þar sem birtar eru tölur sem sýna þann skaða sem evrópsk flugfélög hafa orðið fyrir vegna ferðatakmarkanna í löndum innan Evrópu vegna COVID-19 heimsfaraldursins.
Skýrslan sundurliðar efnahagsleg áhrif sem ferðatakmarkanir hafa haft á efnahaginn í Evrópu
er kemur að fækkun farþega, uppsagna og samdráttar sem snýr að störfum sem tengjast flugiðnaðinum
og hefur IATA miklar áhyggjur af þeim langtímaáhrifum sem ferðatakmarkanir kunna að hafa
á flugfélögin.
Flugferðum hefur fjölgað nokkuð innan Evrópu og hafa sum flugfélög reynt að auka sætaframboð
sitt um allt að 50 prósent í sumar og fram í september en þær tölur eiga sennilega eftir að lækka
þegar haustið tekur við.
Ekki hægt að gera áætlanir langt fram í tímann vegna óvissunnar
Aðaláhyggjuefni samtakanna er sú óvissa sem flugfélög standa frammi fyrir þar sem flugfélög ná ekki að gera neinar langtímaáætlanir á leiðarkerfi þar sem lönd innan Evrópu
eru ekki með neitt samræmi í reglum varðandi takmarkanir á seinni bylgju faraldursins.
Tóm brottfararhlið á flugvellinum í Manchester í mars í vor
Vegna þessa hafa mörg flugfélög þess í stað ákveðið að skera niður rekstur sinn með
því að segja upp starfsfólki og loka starfsstöðvum sínum á evrópskum flugvöllum.
„Það er gríðarlegt áhyggjuefni að sjá allar þær vonir sem flugfélög höfðu um bata í farþegaflugi verða
að engu og þau keðjuverkandi áhrif sem þetta er að hafa á störf, afkomu og velgengni flugfélaganna“, segir
Rafael Schvartzman, varaformaður IATA í Evrópu.
Schvartzman segir að það sé mjög nauðsynlegt að ríkisstjórnir landa innan Evrópu vinni
að lausn með flugiðnaðinum og búi til samræmda áætlun til að opna aftur landamæri.
Frá flugstöð á Heathrow-flugvelli í maí í vor
IATA hvetur Evrópulönd til að grípa til aðgerða með sameinuðu átaki svo hægt sé að draga
úr þeim skaða sem framundan er í fluginu ef landamæri fara ekki að opna aftur í bráð.
Aðeins 50 smit komið upp í farþegaflugi af 21.900.000 COVID smitum
Fram kemur að flugiðnaðurinn hafi ávalt unnið náið með evróskum yfirvöldum og stofnunum á borð við
Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO) og Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) í öllu er viðkemur flugöryggi, reglugerðum og átaki.
Nú þegar sé búið að koma á reglum um grímunotkun meðal farþegar og áhafna og sleppa notkun á miðjusætinu um borð í flugvélum og kemur fram að þær aðgerðir hafa þegar skilað árangri.
Færri farþegar fara nú um flesta flugvelli í Evrópu og víðar
Af yfir 20 milljónum kórónaveirusmitum í heiminum eru aðeins 50 smit sem má rekja til
þess að smitaður farþegi hafi smitað annan farþega um borð í flugi.
„Það er mjög mikilvægt að Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins gefi út ótvíræða yfirýsingu varðandi hvað stofnunin hefur í huga svo flugfélög geti farið að vinna að vetraráætlun sinni og er það undarlegt að ekkert hafi verið unnið að þessu í sumar þar sem hver dagur sem líður skiptir máli“, segir Schvartzman.
Þá segir Schvartzman að opinberir styrkir til flugfélaga sé ekki nóg þar sem þau þurfa
meira fé til þess að halda rekstrinum gangandi í þessu formi án þess að grípa til enn
frekari uppsagna og niðurskurði í flugflota.
IATA taldi fyrr í sumar að 6 milljón starfa gætu verið í húfi en uppfærð afkomuspá
flugfélaganna vegna kórónaveirufaraldursins gerir ráð fyrir að sjö milljón starfa í fluginu
sé nú í hættu vegna óvissunnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.