flugfréttir
Hafa endugreitt farþegum fyrir 194 milljarða
Airbus-þotur Qatar Airwys á flugvellinum í Doha í Katar
Qatar Airways segir að sú upphæð sem félagið hefur þurft að punga út til þess að endurgreiða farþegum flugmiða frá því að kórónaveirufaraldurinn hófst í mars nemi nú 194 milljörðum króna.
Við upphaf faraldursins var Qatar Airways að vinna úr um 10.000 beiðnum á dag þegar
mest var frá farþegum sem fóru fram á að fá endurgreitt.
Flugfélagið segir að búið sé að afgreiða 96% af endugreiðslubeiðnum frá því í mars í vor
en félagið hefur einnig boðið farþegum upp á aðra möguleika eins og að breyta bókunum.
Qatar Airways segir að 36% af farþegum hafi kosið að láta breyta bókuninni og ferðast
síðar þegar betur árar og flugið fer að ná sér á strik aftur.
Qatar Airways hefur breytt ferðatímabilinu og gildir flugmiði í 2 ár og geta farþegar
breytt dagsetningu og áfangastað að kostnaðarlausu þar sem aðstæðurnar í dag
eru aðrar.
Í dag flýgur Qatar Airways um 500 flugferðir á viku til 80 áfangastaða og notar
til þess farþegaþotur af gerðinni Boeing 787 og Airbus A350 en Airbus A380 risaþotur
félagsins eru ekki í notkun eins og er.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.