flugfréttir

330 farþegar í flugbanni fyrir að neita að nota grímur

- Helmingur þessara farþega á svörtum lista hjá Delta Air Lines

19. ágúst 2020

|

Frétt skrifuð kl. 06:49

Delta Air Lines hefur sett 150 farþega á bannlista fyrir að neita að vera með andlitsgrímur á sér um borð

Fjöldi þeirra flugfarþega vestanhafs sem hefur verið bannað að fljúga þar sem þeir neituðu að vera með andlitsgrímur á sér um borð í flugi telur nú yfir 300 manns.

Fram kemur að fimm bandarísk flugfélög séu búin að setja 330 farþega á „svartan lista“ þar sem þeir neituðu að hylja vit sín með grímum og vildu ekki fara eftir þeim sóttvarnarreglum sem snýr að flugfarþegum.

Tæpur helmingur þessara farþega flugu með Delta Air Lines sem hefur sett 150 farþega á svarta listann sinn og þá eru um 100 farþegum ekki lengur velkomið að fljúga með United Airlines vegna mótþróa við að hlýða reglunum.

Þá hefur Frontier Airlines bannað 65 farþega og Alaska Airlines 37 farþega en American Airlines hefur enn ekki birt tölur um fjölda þeirra farþega sem neituðu að vera með grímur um borð í flugvélum sínum en félagið segir að það hafi ekki brugðist til þess ráðs að banna neina farþega.

Bandarísku flugfélögin hafa mjög misjafna stefnu er kemur að flugbanni og hafa sum flugfélög ekki bannað farþegum að fljúga nema ef um ítarleg hegðunarbrot séu að ræða. Þá deila flugfélögin ekki flugbannlista með öðrum félögum sem þýðir að farþegi sem er bannaður t.a.m. hjá Delta Air Lines getur pantað sér nýtt fargjald með öðrum flugfélögum.

Stefna flugfélaganna er hinsvegar skýr er kemur að grímunotkun. Öllum farþegum er gert að hafa grímur á sér allan tímann á meðan á fluginu stendur en þeir farþegar sem fara á svarta listann fá ekki að fljúga með viðkomandi flugfélagi svo lengi sem skylda er að vera með grímu á sér vegna kórónaveirufaraldursins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga