flugfréttir
Svíþjóð hafnar beiðni Norwegian um ríkisábyrgð
- Veita aðeins aðstoð til flugfélaga sem voru sjálfbær við árslok 2019
Boeing 737-800 þotur Norwegian
Eftir að hafa rétt náð að þrauka í gegnum fyrri bylgju COVID-19 faraldursins stendur norska flugfélagið Norwegian núna frammi fyrir miklum vanda þar sem sænska ríkisstjórnin hefur hafnað beiðni félagsins um ríkisábyrgð.
Á sama tíma hafa ríkisstjórnir Norðurlandanna sett tugi milljarða króna í rekstur SAS auk ríkisábyrgðar en skilmálar sænsku ríkisstjórnarinnar er kemur að ríkisábyrgð til flugfélaga vegna
COVID-19 eru þeir að viðkomandi flugfélag verður að hafa verið sjálfbært og hafa verið rekið með hagnaði á síðasta degi ársins 2019
til að eiga rétt á að fá aðstoð.
Rekstur Norwegian gekk brösulega áður en kórónaveirufaraldurinn braust út og hafði félagið verið rekið með
tapi í nokkur ár fyrir árið 2020 og höfðu vandamál félagsins aðeins aukist ef eitthvað er vegna þess
hversu hratt félagið jók umsvif sín og þá einna helst í lágfargjaldaflugi yfir Atlantshafið með breiðþotum.
Skuldir Norwegian voru komnar yfir eitt þúsund milljarða króna árið 2019 sem er ástæða þess
að ríkisstjórn Svíþjóðar hefur tekið endanlega ákvörðun og mun Norwegian ekki geta áfrýtt þeim úrskurði.
Þess má geta að fyrr á þessu ári fékk Norwegian björgunarpakka frá norsku ríkisstjórninni upp á 40 milljarða
í formi láns en slík lán duga hinsvegar skammt á tímum sem þessum og er sjaldan trygging fyrir því
að flugfélag nái að halda sér á floti í gegnum faraldurinn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.