flugfréttir
Fresta afheningum á Airbus A220 þotum til ársins 2024
Airbus A220 þota airBaltic
Lettneska flugfélagið airBaltic ætlar að fresta afhendingum á fleiri Airbus A220 þotum og ekki taka inn eins margar nýjar þotur af þeirri gerð strax eins og upphaflega stóð til.
AirBaltic er í dag eingöngu með Airbus A220 þoturnar í flotanum og hefur félagið fengið 22
slíkar afhentar og eru 30 sem bíða afhendingar.
Nýlega hafa tvær verið afhentar til viðbótar og stendur til að þrjár til viðbótar bætist við
í flotann fyrir lok ársins og áttu hinar 28 að vera afhentar til ársins 2023 en airBaltic ætlar að
breyta afhendingum þannig að sú síðasta verður afhent árið 2024.
AirBaltic vinnur nú eftir viðskiptaáætluninni „Destination 2025 CLEAN“ sem miðar að því að félagið
verði komið með 50 Airbus A220 þotur árið 2023 en félagið hefur samið við Airbus um að breyta því til ársins 2024.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.