flugfréttir
Piper-flugvél magalenti á flugvellinum á Ísafirði
Flugvélin á brautinni á flugvellinum á Ísafirði í gær / Ljósmynd af mbl.is (Halldór Sveinbjörnsson)
Engan sakaði er lítil eins hreyfils Piper Arrow III flugvél magalenti á flugvellinum á Ísafirði seinnipartinn í gær.
Fram kemur að flugvélin hafi magalent á brautinni skömmu eftir flugtak en ekki er vitað nánar hvað átti sér stað að svo stöddu.
Flugvélin, sem er af gerðinni Piper PA28-R-201T Turbo Arrow og ber skráninguna D-EMBW, er skráð í Þýskalandi og kom hún hingað til lands
sl. mánudag, þann 17. ágúst, frá Þýskalandi en vélin hafði meðal annars viðdvöl á Wick í Skotlandi.
Atvikið átti sér stað um klukkan 16:00 í gær og var hið fínasta veður er atvikið gerðist, 13 hnútar frá
norðaustri (vindstefna 050°) og heiðskírt.
Atvikið raskaði áætlunarflugi á vegum Air Iceland Connect en de Havilland Dash 8-200 flugvél félagsins, sem
var á leið til Ísafjarðar, þurfti að snúa við til Reykjavíkur þegar flugvélin var yfir Breiðafirði.
Sjá má á Flightradar24.com hvar flugvél frá Air Iceland Connect þurfti að snúa við til Reykjavíkur þar sem Piper-flugvélin var föst á brautinni á Ísafirði
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.