flugfréttir
Fraktflugvél fórst skömmu eftir flugtak í Suður-Súdan
- Aðeins einn komst lífs af
Flugvélin sem fórst var af gerðinni Antonov An-26B
Sjö eru látnir í flugslysi í Suður-Súdan eftir að fraktflugvél af gerðinni Antonov An-26B fórst skömmu eftir flugtak í dag.
Flugvélin fór í loftið frá flugvellinum í borginni Juba og var förinni heitið til borgarinnar Wau í Suður-Súdan.
Flugvélin, sem var í eigu South West Aviation, var að fljúga með matvæli á vegum Sameinuðu þjóðanna
auk þess sem peningar voru um borð í vélinni, mótorhjól auk varahluta.
Madut Biar Yel, samgönguráðherra Suður-Súdan, var á vettvangi og varð hann vitni að slysinu og segir
hann að um borð hafi verið átta manns, þrír áhafnarmeðlimir auk fimm farþega, og var einn sem lifði slysið af.
Aðrir fréttamiðlar segja að um borð hafi verið tveir áhafnarmeðlimir og fimmtán farþegar og eru því tölur
um fjölda þeirra sem voru í vélinni enn á reiki.
Fram kemur að flugvélin hafi brotlent nokkrum mínútum eftir flugtak
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.