flugfréttir

Engar A340 lengur í flota Iberia

- Síðasta A340-600 breiðþotan kveður flugfélagið spænska

24. ágúst 2020

|

Frétt skrifuð kl. 11:09

Airbus A340-600 þota frá Iberia

Engar fjögurra hreyfla breiðþotur eru nú lengur í flota Iberia en flugfélagið spænska hætti með þá síðustu sem tekin var úr umferð á dögunum.

Airbus A340 breiðþoturnar hafa þjónað Iberia í 24 ár og hafa þær verið aðalvinnuhestur félagsins í flugi til fjarlægra áfangastaða frá Madríd allt frá tíunda áratug síðustu aldar.

Síðasta Airbus A340 þotan sem kvaddi flugflotann var af gerðinni Airbus A340-600 og bar hún skráninuna EC-JLE en hún var tekin í notkun í september árið 2005 og hafði Iberia fjórtán A340-600 þotur þegar mest var.

Iberia fékk fyrstu Airbus A340 þotuna árið 1996 og var sú þota af gerðinni A340-300 og leystu þessar þotur af hólmi Boeing 747-200 júmbó-þoturnar.

Iberia ætlaði sér að hafa A340 breiðþoturnar í flotanum alveg fram til ársins 2025 en áhrifin af kórónaveirufaraldrinum hafa bundið enda á sögu þeirra hjá félaginu.

Síðasta A340-600 þotan, EC-JLE, sem skírð var Santiago Ramón y Cajal, í höfuðið á spænskum vísindamanni í taugalækningum, flaug síðasta áætlunarflugið frá Quito til Madríd þann 1. ágúst síðastliðinn.

Airbus A340-600 þota Iberia í lendingu á flugvellinum í Santiago í Chile







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga