flugfréttir
ESB samþykkir 75 milljarða styrk til Brussels Airlines
Airbus A319 þota frá Brussels Airlines
Evrópusambandið hefur gefið grænt ljós fyrir björgunarpakka til belgíska flugfélagsins Brussels Airlines sem á von á styrk upp á 75 milljarða króna.
Styrkurinn samanstendur af opinberri aðstoð frá ríkisstjórn Belgíu upp á 47
milljarða króna og 27 milljarða króna sem móðurfélagið, Lufthansa Group, mun
setja í reksturinn til að bjarga félaginu í gegnum erfiða tíma í flugheiminum.
Í yfirlýsingu frá Brussels Airlines segir að styrkurinn eigi eftir að koma til móts
við þá upphæð sem félagið hefur tapað vegna kórónuveirufaraldursins og þá
verður einnig hægt að vernda þau störf sem hefðu annars verið í húfi.
Brussels Airlines ætlar sér næst að einblína á viðsnúningsáætlun félagsins sem
nefnist Reboot Plus en félagið mun meðal annars fækka flugvélum í flotanum
um 16 flugvélar, úr 54 niður í 38, sem samsvarar 30% niðurskurði á flota.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.