flugfréttir
ExpressJet mun hætta starfsemi
- Hætta öllu flugi í september og sennilega verður öllum sagt upp
Embraer ERJ-145 þota frá ExpressJet í litum United Express
Bandaríska flugfélagið ExpressJet ætlar að hætta starfsemi sinni í næsta mánuði en þetta kemur fram í skilaboðum sem send voru í dag til starfsmanna félagsins.
ExpressJet er eitt af stærstu svæðisflugfélögum Norður-Ameríku og annast flugfélagið
flugrekstur fyrir United Express með yfir 90 Embrear ERJ-145 þotum.
Fram kemur að félagið muni hætta öllu flugi þann 30. september og verður nánast
öllu starfsfólki félagsins sagt upp störfum en hjá ExpressJet starfa 3.000 manns.
Í skilaboðum frá framkæmdarstjóra félagsins kemur fram að vegna óvissunnar vegna COVID-19 heimsfaraldursins
sé mjög erfitt að gera áframhaldandi flugáætlanir fram í tímann eftir að september lýkur.
ExpressJet ákvað að velja 30. september þar sem á þeim degi endar skilmáli bandarísku ríkisstjórnarinnar
er varðar opinbera aðstoð sem kemur í veg fyrir að flugfélag geti sagt upp starfsfólki á meðan flugfélag
er að þiggja aðstoð en rekstarféið, sem ExpressJet hefur fengið frá bandarískum stjórnvöldum, verður
á þrotum í lok mánaðarins.
Þá sagði United Airlines upp samningi sínum við ExpressJet þann 30. júlí sl. og gerði flugfélagið í framhaldi af því samning
við Commut Air sem þýðir að ExpressJet mun ekki hafa lengur samning við neitt bandarískt
svæðisflugfélag á næstunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.