flugfréttir
Tæplega 2.000 manns verður sagt upp hjá Delta í október
Flugvélar Delta Air Lines á flugvellinum í Atlanta í Bandaríkjunum
Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hefur ákveðið að segja upp tæplega 2.000 manns í október.
Flugfélagið sendi starfsmönnum sínum skilaboð í gær þar sem fram kemur að 1.941 starfsmanni verður
sagt upp en varaformaður Delta Air Lines segir að flugfélagið sé hreinlega yfirmannað eins og staðan er í dag.
Nú þegar hefur einn af hverjum 5 starfsmönnum félagsins boðið sig fram til þess að segja starfi sínu lausu
og tekið við starfslokagreiðslum en John Laughter, varaformaður félagsins, segir að það sé hinsvegar ekki nóg og
sé því nauðsynlegt að bregðast við vegna þeirra óvissu sem framundan er í fluginu.
Í dag eru 11.200 flugmenn starfandi hjá Delta Air Lines en Laughter segir að félagið þurfi á 9.450 flugmönnum að halda
fyrir næsta sumar og gerir félagið ráð fyrir að þurfa ekki fleiri flugmenn yfir háannatímann næsta árið.
Laughter segir að Delta Air Lines sjái fram á að ná sér aftur á strik eftir að heimsfaraldurinn er liðinn hjá og því fyrr
sem eftirspurnin kemur aftur til baka, þeim mun hraðar verður bataferlið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.