flugfréttir
Finnair selur eina A350 þotu
- Verður áfram í flotanum með leigusamningi
Airbus A350-900 þotan, sem Finnair hefur selt og leigt aftur, ber skráninguna OH-LWP
Finnair hefur selt eina af þeim fimmtán Airbus A350 breiðþotum sem félagið hefur í flotann í þeim tilgangi að auka rekstrarfé og lausafjárstöðu félagsins.
Airbus A350 þotan verður samt sem áður áfram í flota Finnair þar sem um sölu- og endurleigusamning
er að ræða og mun félagið því greiða leigugjöld af vélinni í stað þess að eiga þotuna.
Þotan sem um ræðir er nýjasta A350 þotan sem félagið fékk afhenta frá Airbus í
febrúar á þessu ári en með sölunni mun rekstrarfé Finnair aukast um 13,8 milljarða króna.
Fyrirtækin Nomura Babcock & Brown Co. og BBAM Aircraft Management sáu um sölu- og ráðgjafarferlið
á þotunni fyrir Finnair sem mun leigja þotuna til að byrja með til næstu 12 ára með möguleika
á að framlengja leigunni.
Þotan hefur verið í viðstöðulausri notkun frá því hún var afhent og hefur verið notuð
m.a. í áætlunarflugi til Bangkok, Shanghai, Tókýó og Delí svo eitthvað sé nefnt en að undanförnu hefur vélin verið notuð í flugi til New York og Seoul.
Af þeim fimmtán Airbus A350 þotum sem Finnair hefur fengið afhentar þá eru 11 í notkun í dag
en fjórar þotur eru enn í tímabundinni geymslu vegna heimsfaraldursins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.