flugfréttir
Nýtt flugfélag í undirbúningi í Aspen - Bar verður um borð
- AspenJet stefnir á að hefja flug frá skíðastaðnum fræga árið 2021
AspenJet stefnir á að byrja að fljúga árið 2021
Margir myndu halda að ástandið í flugiðnaðinum í dag ætti að virka fráhryndandi fyrir þá aðila sem hafa áform um að stofna nýtt flugfélag en bandaríski frumkvöðullinn Patrick Dial segir að þetta sé hárrétti tíminn til að hrynda úr vör nýju flugfélagi.
Dial hefur unnið að stofnun nýs flugfélag sem nefnist AspenJet og mun félagið byrja að fljúga með farþega snemma á næsta ári ef allt gengur eftir áætlun.
Dial segir að flugfélagið verði einskonar „tvinn-flugfélag“ sem mun bæði sinna
áætlunarflugi og einkaflugi fyrir þá aðila sem vilja leiga sér sína eigin þotu til að komast
á milli staða.
Félagið, sem mun hafa höfuðstöðvar sínar Aspen í Colorado, ætlar meðal annars
að fljúga frá Aspen til New York, San Francisco, Chicago, Fort Lauderdale og
einnig til einhverra áfangastaða í Texas.
Þeir áfangastaðir sem AspenJet ætlar að fljúga til frá Aspen
AspenJet ætlar ekki að fljúga sínum eigin flugvélum heldur verður
sérstakt fyrirtæki fengið til að sjá um flugreksturinn og mun AspenJet
sjá um sölu á farmiðum og bókanir.
Þar sem að flugvöllurinn í Aspen er staðsettur í 7.820 feta hæð
yfir sjávarmáli þá mun félagið hafa litlar farþegaþotur í flotanum og
hafa Embraer ERJ-175 þoturnar orðið fyrir valinu og munu þær eingöngu
koma með sætum fyrir 30 farþega.
AspenJet stefnir ekki á að vera með lág fargjöld og ætlar félagið að einblína
á að endurheimta þann lúxus sem einkenndi áttunda áratug síðustu aldar
og verður bar komið fyrir um borð í Embraer-þotunum þar sem farþegar
geta setið og notið drykkja í miðju flugi.
Tölvugerð mynd af Embraer-þotu í litum ApsenJet
Þegar Patrick Dial komst að því að afkastageta flugvéla á flugvellinum í Aspen
takmarkast við 4.500 kíló hámarksflugtaksþunga og flugvélar með 95 feta
vænghaf eða minna, sá hann tækifæri á borði að bjóða upp á beinar flugferðir til að koma
farþegum með auðveldari hætti til skíðabæjarins fræga en flest flugfélög geta ekki flogið
stærri þotum í beinu flugi frá Aspen til stærsta borga Bandaríkjanna.
„Þetta er ástæða þess að ekkert flugfélag hefur getað flogið frá Aspen til borga á borð
við New York og Miami með fullfermi af farþegum og með fulla eldsneytistanka“, segir Dial.
Í stað þess að nota Embraer ERJ-175 þotur með fullri sætanýtingu þá verða þoturnar
innréttaðar með sæti fyrir 30 farþega en hefðbundnar ERJ-175 þotur taka 88 farþega.
Aðeins minni þotur geta farið um flugvöllinn í Aspen þar sem hann er staðsettur í yfir 7.000 feta hæð yfir sjávarmáli
„Einhver myndi halda að ég væri heimskur að stofna flugfélag í miðjum fellibyl sem er að
ganga yfir flugiðnaðinn en staðreyndin er sú að þetta er besti tíminn þar sem núna er hægt
að taka flugvélar á leigu á mjög hagstæðum kjörum sem eru í geymslu í dag“, segir Dial.
AspenJet er enn að ganga frá viðeigandi pappírsvinnu í samvinnu við
samgönguráðuneyti Bandaríkjanna og bandarísk flugmálayfirvöld (FAA).
Þá ætlar AspenJet að nota sína eigin flugstöð sem mun spara farþegum það umstang sem fylgir
því að fara um almenna flugstöð með tilheyrandi biðröðum við innritunarborð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.