flugfréttir
Flugskóli í Slóveníu selst á aðeins 1.2 milljón króna
Stofnun í Slóveníu og kínverskir fjárfestar hafa keypt flugskólann sem var í eigu Adria Airways flugfélagsins
Slóvenski flugskólinn Adria Airways Flight School hefur verið seldur en flugskólinn var hluti af flugfélaginu Adria Airways sem varð gjaldþrota í september í fyrra.
Fljótlega eftir gjaldþrot Adria Airways eða í október 2019 var skólinn settur á sölu
og var óskað eftir tilboðum í allan reksturinn auk tveggja kennsluflugvéla, flughermis
og þá fylgdi rekstrarleyfi skólans til flugkennslu með í kaupunum.
Skólinn seldist á aðeins 1,2 milljónir króna en fram kemur að taprekstur flugskólans hafi numið 55 milljónum króna árið 2018 sem var síðasta heila rekstrarár skólans.
Nýr eigandi flugskólans fyrrum yfirmaður stofnunar fyrir stjórnskipulagskerfi og mannréttindi (Institute for Constitutional Systems
and Human Rights) og var skólinn keypt í samvinnu við kínverskan fjárfesti sem mun eignast 55% hlut í flugskólanum.
Peter Jambrek, formaður stofnunarinnar, segir að fyrirtæki hans auk kínverskra fjárfesta
hafa áform um að gera skólann að einum stærsta flugskóla heims auk annara flugskóla í fleiri
löndum og þar á meðal löndum í Asíu sem verið er að fjárfesta í.
Til stendur að flugskólinn muni hefja flugkennslu að nýju á næsta ári um leið og búið er að ljúka við alla þá pappírsvinnu sem til þarf og senda inn öll gögn og umsóknir varðandi starfsleyfi.
Verðmætasta eign skólans er kennslulréttindi flugskólans sem gefur skólandum leyfi til þess að stunda flugkennslu og útskrifa nýja flugmenn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.