flugfréttir
Innanlandsflug í Kína að ná fullum bata eftir COVID-19
- Að nálgast sama brottfarar- og komufjölda og var árið 2019
Innanlandsflug í Kína mun í september ná sömu tölum yfir fjölda brottfara og koma og var árið 2019
Innanlandsflug í Kína er að ná fullum bata eftir COVID-19 heimsfaraldurinn og er því spáð að fjöldi flugferða í innanlandsflugi þar í landi á eftir að verða sá sami og árið 2019 strax í næsta mánuði.
Um miðjan þennan mánuði var fjöldi flugferða í innanlandsflugi í Kína komin í 86%
af þeim fjölda áætlunarflugferða sem farnar voru í innanlandsflugi í landinu á sama tíma í fyrra.
Sérfræðingar hjá fyrirtækinu ForwadKeys, sem sérhæfir síg í greiningu er varðar ferðalög og flugsamgöngur, telur fjórar ástæður liggja þar að baki en aðalástæðan er talin
vera sú að Kínverjar hafa náð góðum árangri í að ná tökum á kórónaveirunni.
Þá kemur fram að flugfélög í Kína hafa verið dugleg að auglýsa tilboð og góð kjör
sem hefur laðað að fleiri flugfarþega en meðal tilboða sem mörg kínversk flugfélög hafa
auglýst er sérstaktur passi sem veitir farþegum aðgang að ótakmörkuðum fjölda flugferða
fyrir vist tímabil.
Innanlandsflugið í Kína náði botninum um miðjan febrúar en hefur stöðugt verið að sækja
í sig veðrið og hefur flugferðum farið fjölgandi með hverri vikunni í vor og í sumar.
„Þetta er mjög merkilegt þar sem þetta er í fyrsta sinn síðan að COVID-19 hófst sem við
erum að sjá næstum því fullan bata á einnhverjum markaði í flugiðnaðinum“, segir
Olivier Ponti, varaformaður hjá ForwardKeys.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.