flugfréttir

Kenna flugumferðarstjórum um Kobe Bryant flugslysið

- Island Express Helicopters höfðar mál gegn tveimur flugumferðarstjórum

27. ágúst 2020

|

Frétt skrifuð kl. 18:07

Þyrlan með Kobe Bryant fórst þann 26. janúar á þessu ári

Þyrlufyrirtækið og flugrekandi þyrlu af gerðinni Sikorsky S-76B, sem fórst í janúar á þessu ári með fyrrum L.A. Lakers körfuboltastjörnunni Kobe Bryant um borð auk átta annara með þeim afleiðingum að allir létu lífið, hefur höfðað mál gegn tveimur flugumferðarstjórum í Los Angeles og kennir fyrirtækið flugumferðarstjórunum um slysið.

Það er fyrirtækið Island Express Helicopters sem átti þyrluna sem fórst er hún brotlenti í hlíðum nálægt San Fernando dalnum í þoku og mjög lélegu skyggni þann 26. janúar síðastliðinn.

Í málsgögnum, sem hafa verið send inn til dómsstóla í Los Angeles, telur þyrlufyrirtækið að flugumferðarstjórar hafi láðst að veita flugmanni þyrlunnar áframhaldandi sjónsflugsfyrirmæli skömmu fyrir slysið og telur fyrirtækið að ábyrgðin hafi verið í höndum tveggja flugumferðarstjóra.

Í göngum fullyrðir fyrirtækið að það hafi verið mistök af flugumferðarstjórunum að neita þyrluflugmanninum um frekari þjónustu á þeim forsendum að hann væri að hverfa af ratsjá bráðlega og að fjarskiptasambandið væri að rofna innan skamms en flugmanninum var gert að skipta um kvakmerki og hafa samband „fljótlega“ við flugumferðarstjórana í Camarillo.

Í málsgöngum segir að sú staðreynd að þyrluflugmaðurinn náði að hafa samband við flugumferðarstjórana aftur fjórum mínútum síðar og að ratsjársvarinn var enn senda upplýsingar sanni það að flugvélin var enn sýnileg á ratsjá og skilaboð flugumferðarstjóranna til flugmannsins um að þyrlan væri að hverfa af ratsjá hafi verið þvættingur.

Vill Island Express Helicopter því meina að áframhaldandi þjónusta frá flugumferðarstjórunum hefði getað komið í veg fyrir slysið og segir í málsgögnum að flugmaðurinn hafi orðið stressaður og álagið aukist til muna er honum var tilkynnt að þeir myndu enda frekari sjónflugsleiðbeiningar og segir að þeir hafi því skilið þyrluna eftir án flugleiðsögu við mjög varasamar aðstæður.

Island Express Helicopters hefur sjálft fengið á sig fjórar kærur vegna slyssins frá aðstandendum þeirra sem voru um borð í þyrlunni og þar á meðal frá eiginkonu Kobe Bryants sem hefur höfðað mál gegn þyrlufyrirtækinu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga