flugfréttir

FAA sektar flugvöllinn í Chicago vegna vetrarstarfsemi

31. ágúst 2020

|

Frétt skrifuð kl. 09:45

Frá O´Hare-flugvellinum að vetri til

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa sektað O´Hare-flugvöllinn í Chicago um 206 milljónir króna fyrir að hafa ekki náð að tryggja nægilegt öryggi er snýr að vetrarstarfsemi á flugvellinum á tilteknum degi í nóvember í fyrra.

Atvikið átti sér stað þann 11. nóvember árið 2019 en þá hafði snjóað mikið og voru mjög erfiðar aðstæður á flugbrautinni sem var í notkun. Nokkrar flugvélar lentu í vandræðum með að bremsa eftir lendingu auk þess sem ein flugvél rann út af braut eftir lendingu.

Fram kemur að starfsmenn flugvallarins náðu ekki að framkvæma nógu örar mælingar á ástandi brautarinnar við þessi skilyrði og var flugfélögum ekki gert viðvart um ástandið og hefði því átt að takmarka umferðina um völlinn við þessar aðstæður.

Þrátt fyrir að flugmenn hjá nokkrum flugfélögum hefðu tilkynnt flugumferðarstjórum um vafasamt ástand á brautunum eftir lendingu og slæm bremsuskilyrði þá fengu 43 flugvélar að lenda á brautinni sem endaði með að ein flugvélin rann út af braut vegna hálku.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem að O´Hare flugvöllurinn fær viðvörun frá bandarískum flugmálayfirvöldum er varðar brautarskilyrði við erfiðar vetraraðstæður en FAA varaði flugvöllinn við árið 2017 vegna atvika sem áttu sér stað árið 2016 og 2015.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga