flugfréttir
Dreamliner-þota frá Etihad í tilraunum í Montana
- Framkvæma prófanir vegna ecoDemonstrator-verkefnisins
Boeing 787-10, Dreamliner-þota Etihad Airways, sem tekur þátt í prófununum
Nýrri Dreamliner-þotu af gerðinni Boeing 797-10, sem hefur verið afhent til flugfélagsins Etihad Airways, hefur verið flogið til Montana í Bandaríkjunum þar sem þotan mun gangast undir sérstakar gæðaprófanir vegna ecoDemonstrator verkefnisins.
Verkefnið ecoDemonstrator Program er þróað sérstaklega í þeim
tilgangi er snýr að því að gera Dreamliner-þoturnar enn sparneytnari,
umhverfisvænni og hagkvæmari en verkefninu var ýtt úr vör fyrst árið 2014.
Splunkunýrri Boeing 787-10 þotu, sem var smíðuð í verksmiðjum
Boeing í North Charleston í Suður-Karólínu, var flogið á dögunum
til Seattle þar sem hún var undirbúin fyrir prófanirnar áður en henni var
flogið til Glasgow í Montana en þar fara fram tilraunir er varðar
ecoDemonstrator sem standa yfir næstu tvær og hálfa vikuna.
Prófanirnar vegna ecoDemonstrator-verkefnisins taka tvær og hálfa viku
Búið er að koma fyrir skynjurum og tækjabúnaði sem notaður verður
við mælingar t.a.m. á hljóðmengun frá vélinni en vegna ecoDemonstrator
tækninnar þá mun þotan koma með hljóðlátari farþegarýmis, minni hávaða
er hjólabúnaður er settur niður eða tekin upp auk fleiri atriði.
Hávaðamælingar verða framkvæmdar í samvinnu við NASA þar sem
1.200 hljóðskynjarar verður bæði komið fyrir um borð í vélinni
og einnig á jörðu niðri. Þá verða tilraunir til þess að lágmarka hljóð
frá hjólabúnaði framkvæmdar í samvinnu við Safran Landing Systems.
Dreamliner-þotan, sem tekur þátt í tilraununum, var smíðuð í verksmiðjum Boeing í Norður-Karólínu
Einnig fara fram tilraunir með nýja tækni sem snýr að sótthreinsun
í farþegarými vegna COVID-19 þar sem prófanir verða framkvæmdar
með útfjólubláu ljósi og að lokum mun Boeing sjá um prófanir
með sjálbæran orkugjafa og nýja tækni er kemur að sparneytni varðandi
eldsneyti.
Etihad Airways hefur fengið um 40 Dreamliner-þotur afhentar
frá Boeing og er það markmið flugfélagsins að hafa þoturnar
eins hagkvæmar og sparneytnar og mögulegt er með
ecoDemonstrator verkefninu.
EcoDemonstrator verkefnið felur m.a. í sér tilraunir með sérstaka gróðurhúsaáhrifsskynjara og þá hafa farið fram prófanir er snýr að ókyrrð þar sem gögn með upplýsingum um ókyrrð berast í rauntíma til flugfélaga en slíkt mun auka þægindi meðal farþega og draga úr líkum á
mikilli ókyrrð á meðan á fluginu stendur.
Boeing kynnti ecoDemonstrator verkefnið fyrst árið 2014
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.