flugfréttir

Aero Commander brotlenti á bílastæði í Flórída

31. ágúst 2020

|

Frétt skrifuð kl. 14:53

Flak Aero Commander 500 flugvélarinnar á bílastæði í bænum Pembroke Park

Tveir létust í flugslysi sl. föstudag er lítil tveggja hreyfla flugvél af gerðinni Aero Commander 500S Shrike brotlenti á bílastæði í bænum Pembroke Park í Flórída í Bandaríkjunum.

Flugvélin fór í loftið frá flugvellinum í Pompano Beach og var förinni heitið til Opa Locka en flugvélin fórst nokkrum mínútum eftir flugtak og rakst utan í vegg á vöruskemmu á 5. hæð áður en hún brotlenti á nærliggjandi bílastæði.

Flugvélin var í eigu fyrirtækisins Conquest Air sem annast fraktflug í suðurhluta Flórída auk þess sem fyrirtækið flýgur með vörur til Bahamaeyja en fyrirtækið segir að í þessu tilviki hafi þó ekki verið um áætlunarflug að ræða.

Flugvélin fór í loftið frá flugvellinum í Pembroke Park og var förinni heitið til Opa Locka

Fram kemur að um borð hafi verið tveir flugmenn. Flugstjórinn hét Nissan Giat en með honum í för hafi verið farþegi sem var einnig flugmaður, Joaquin Ricalde Magana að nafni, sem var frá Mexíkó.

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) og samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) rannsaka tildrög slyssins.

Flugvélin rakst utan í vegg á vöruskemmu áður en hún brotlenti á bílastæði







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga