flugfréttir
Qantas fær fyrstu Airbus A321P2F fraktþotuna
Fyrsta Airbus A321P2F fraktþotan í litum QantasFreight í tilraunarflugi í Singapore í gær
Qantas Freight, dótturfélag Qantas, mun á næstunni fá fyrstu Airbus A321P2F þotuna afhenta sem er farþegaþota sem breytt hefur verið í fraktþotu.
Fyrstu flugprófanir fóru fram í gær í Singapore þar sem þotunni var breytt yfir í fraktþotu og er þetta fyrsta Airbus A321 flugvélin sem breytt hefur verið yfir í fraktþotu í tengslum við A321PSF verkefnið sem var kynnt formlega árið 2015.
A321PSF er samvinnuverkefni fyrirtækjanna þriggja ST Aerospace Singapore,
Elbe Fleugzeugwerke (EFW) og Airbus og var þotunni breytt í fraktflugvél á Seletar-flugvellinum
í Singapore.
Airbus A321 þotunni, sem var breytt í fraktþotu, er 22 ára gömul, smíðuð árið 1998, en hún var
áður í flota Iraqi Airways sem fékk þotuna í sinn flota árið 2012 en þar áður flaug hún fyrir
þýska flugfélagið Blue Wings.
Qantas Freight mun nota þotuna til þess að fljúga með póst og vörur fyrir áströlsku
póstþjónustuna Australia Post og verður þotan afhent til félagsins í október og mun
félagið fá tvær þotur til viðbótar sem einnig verður breytt í Airbus A321P2F.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.