flugfréttir
Wings of Lebanon hættir rekstri
Boeing 737-700 þota Wings of Lebanon
Flugfélagið Wings of Lebanon hefur hætt starfsemi sinni vegna viðvarandi ástands í flugheiminum vegna kórónaveirufaraldursins.
Flugfélagið hefur skilað einu þotunni sem var eftir í flotanum en hún var af gerðinni Boeing 737-700 og flaug hún sitt síðasta flug þann 26. ágúst sl. frá borginni Adana í Tyrklandi til Beirút.
Flugvélin var ferjuð daginn eftir til Toulouse þar sem henni var skilað til eiganda
sem er fyrirtækið Macquarie AirFinance.
Wings of Lebanon var leiguflugfélag sem var stofnað árið 2006 og flaug félagið
að mestu leyti leiguflug til sólaráfangastaða í Tyrklandi og í Egyptalandi en félagið
flaug einnig til Grikklands, Þýskalands, Svíþjóðar og til Georgíu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.