flugfréttir
Dash-8-400 þær fyrstu til að uppfylla kröfur ICAO um hávaða
Dash 8-400 flugvél frá Eurowings
Flugvélafyrirtækið De Havilland Aircraft í Kanada tilkynnt í gær að Dash-8 400 flugvélarnar hafi fengið útgefna sérstaka vottun og uppfylla héðan í frá nýjar kröfur Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) er varðar hávaðamengun.
Fram kemur að de Havilland Dash-8-400 sé bæði fyrsta flugvélin í flokki svokallaðra „regional“-flugvéla
og fyrsta skrúfuþotan sem hlýtur þessa vottun sem uppfyllir kröfur sem fram koma í Chapter 14 frá ICAO varðandi hljóðmengun.
Chapter 14 kaflinn, sem er sambærilegur kafla Stage 5 frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA),
fer fram á strangari kröfur um hávaða frá flugvélum sem taka í gildi frá og með 31. desember 2020.
Fram kemur að þeir flugrekendur sem hafa Dash-8-400 flugvélina í sínum flota þurfa ekki að gera neinar breytingar þar sem einungis er um vottun að ræða sem sýnir fram á hversu hljóðlátar vélarnar eru í flugtaki og í lendingu séu þær bornar saman við aðrar sambærilegar flugvélar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.