flugfréttir
PIA hættir við að afrýja flugbanni á vegum EASA
- Undirbúa sig þess í stað fyrir heimsókn öryggisnefndar IATA
Airbus A320 farþegaþota frá PIA á flugvellinum í Karachi í Pakistan
Pakistanska flugfélagið PIA (Pakistan International Airlines) hefur hætt við að afrýja dómi flugöryggisstofnunnar Evrópu (EASA) sem bannaði flugfélaginu fyrir tveimur vikum síðan að fljúga áætlunarflug til Evrópu næstu sex mánuðina.
Tveggja mánaða frestur til þess að áfrýja niðurstöðunni rann út í enda ágústmánaðar og ætlar félagið þess í stað að undirbúa sig fyrir heimsókn öryggisnefndar á vegum IATA
sem er væntanleg til Pakistan í næstu viku til þess að gera úttekt á flugöryggi í landinu.
Öryggisnefndin framkvæmir úttekt á tveggja ára fresti og verða starfsmenn stofnunarinnar
í Pakistan í fimm daga og ætlar stjórn PIA að gera tilraun til þess að sýna fram á að flugfélagið uppfylli kröfur og staðla um alþjóðlegt flugöryggi.
EASA bannaði PIA að fljúga til Evrópu eftir að í ljós kom að fjöldi flugmanna hjá félaginu
voru með ýmist fölsuð skírteini eða ófullnægjandi réttindi til atvinnuflugs og var það mat IATA
að yfirsýn og eftirlit flugmálayfirvalda með réttindum flugmanna var mjög bágborið.
Vegna bannsins hefur PIA þurft að segja upp starfsfólki í starfsstöðvum félagsins í evrópskum
borgum á borð við Barcelona, Kaupmannahöfn, Mílanó og í Osló.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.