flugfréttir

Norwegian fer fram á aðra aðstoð frá norska ríkinu

- Fyrri fjárhagsaðstoð upp á 47 milljarða króna dugar ekki til

3. september 2020

|

Frétt skrifuð kl. 14:49

Boeing 737 þota Norwegian í flugtaki á flugvellinum í Malaga á Spáni

Norwegian hefur hafið viðræður við stjórnvöld í Noregi varðandi enn frekari fjárhagsaðstoð vegna rekstrarvanda og segir félagið að björgunarpakki upp á 47 milljarðar króna, sem norska ríkisstjórnin var búin að samþykkja fyrir félagið, dugar ekki til.

Geir Karlsen, fjármálastjóri Norwegian, segir að við upphaf COVID-19 heimsfaraldursins hafði félagið útskýrt fyrir norskum stjórnvöldum hversu mikið fé félagið þyrfti til þess að halda rekstrinum gangandi en Norwegian segir að viðbrögð ríkisstjórnar Noregs séu samt sem áður frekar óskýr.

Hluthafar og fjárfestar samþykktu björgunarpakka upp á 47 milljarða króna í maí í vor og einnig var gefið grænt ljós fyrir félagið að safna 156 milljörðum króna með því að breyta skuldum félagsins í hlutafé fyrir kröfuhafa.

Norwegian hafði áður gefið í skyn að félagið þyrfi frekari fjárhagsaðstoð frá norsku ríkissstjórninn en félagið hafði einnig farið fram á ríkisstyrk frá ríkisstjórn Svíþjóðar en sænsk stjórnvöld höfnuðu þeirri beiðni í ágúst.

Jacob Schram, framkvæmdarstjóri Norwegian, bendir á að mörg samkeppnisflugfélög hafi fengið úthlutaða opinbera styrki frá ríkisstjórnum til þess að þrauka í gegnum kórónaveirufaraldurinn en þess má geta að búið er að tryggja rekstur SAS sem er helsti samkeppnisnautur Norwegian.

Ekki kemur fram hversu mikla upphæð Norwegian fer fram á til viðbótar til þess að hægt sé að tryggja rekstur félagsins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga