flugfréttir

Reyna að gera 787-8 ódýrari í framleiðslu og innkaupum

- Vonast til að Boeing 787-8 verði fýsilegur kostur eftir COVID-19

3. september 2020

|

Frétt skrifuð kl. 15:26

Ný Dreamliner-þota af gerðinni Boeing 787-8 í Everett í Bandaríkjunum

Boeing ætlar sér að lækka framleiðslukostnaðinn við smíði Boeing 787-8 þotunnar í þeim tilgangi að geta boðið hana á lægra verði í von um að ná inn fleiri pöntunum í þotuna.

Boeing 787-8 er minnsta tegundin af Dreamliner-þotunni en pantanir í hana hafa verið frekar dræmar og hafa helmingi fleiri eintök t.a.m. verið pöntuð af Boeing 787-9 gerðinni.

Því er spáð að þegar flugiðnaðurinn tekur við sér á ný eftir kórónaveirufaraldurinn að mörg flugfélög eigi eftir að byrja rólega og kjósa minni tegundir af flugvélum og þá einnig minni breiðþotur.

Boeing vonast eftir því að minnsta Dreamliner-þotan gæti orðið fýsilegur kostur fyrir flugfélög en Boeing dró fyrir nokkrum árum síðan úr markaðsherferð Boeing 787-8 þotunnar þar sem hún þótti dýr í innkaupum vegna þess hversu hár framleiðslukostnaðurinn var sem mátti rekja til erfiðleika við þróun og framleiðslu á árinum 2004 til 2011.

Auka sameiginleikann við Boeing 787-9 og 787-10 tegundirnar

Boeing hefur ekki viljað tjá sig varðandi hvaða leiðir framleiðandinn ætlar að fara til þess að gera Boeing 787-8 ódýrari í framleiðslu en flugsérfræðingurinn Bjorn Fehrm bendir á að kostnaðurinn liggi í sameiginleika vélanna.

Á meðan Boeing 787-9 og Boeing 787-10 þoturnar eru 95% sambærilegar hvor annarri þá sé sameiginleiki Boeing 787-8 við hinar tvær stærri tegundirnar aðeins 30 prósent.

Bjorn segir að lykillinn sé að gera eins marga íhluti, eiginleika og aðra þætti við Boeing 787-8 eins svipaða og hægt er. Árið 2019 voru aðeins framleiddar sex Boeing 787-8 þotur á meðan 122 þotur voru framleiddar af gerðinni 787-9 og 787-10.

Björn bendir á að kostnaðurinn við að framleiða sérstaka íhluti í sex eintök af Boeing 787-8 þotum í stað þess að það séu sömu einingar og notaðar eru við hinar tvær tegundirnar gera 787-8 þotuna mjög dýra í framleiðslu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga