flugfréttir

Fresta afhendingum á öllum nýjum þotum frá Airbus

- Eiga enn í viðræðum við Boeing um að fresta afhendingum

3. september 2020

|

Frétt skrifuð kl. 20:19

Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways

Qatar Airways hefur náð samkomulagi við Airbus um að fresta móttöku á þeim farþegaþotum sem félagið hefur pantað að undanförnu vegna kórónaveirufaraldursins en flugfélagið á einnig í viðræðum við Boeing um að seinka afhendingum.

Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways, segir að félagið hafi samt sem áður möguleika á því að breyta afhendingaráætlun sinni hjá Airbus og fá vélarnar afhentar fyrr ef aðstæður breytast til hins betra með aukinni eftirspurn.

„Er varðar Boeing þá eigum við enn í viðræðum við þá og hvað sem þeim finnst þá verður flugvélaframleiðandi að átta sig á því að þetta eru erfiðir tímar og þeir verða að aðlaga sig að aðstæðum“, segir Al Baker.

„Þeir sem vilja ekki láta af kröfum sínum og standa við bakið á okkur á erfiðum tímum munu ekki sjá okkar viðskipti aftur“, bætir Al Baker við.

Qatar Airways lýsti því yfir í júní í sumar að félagið myndi ekki taka neinar nýjar flugvélar inní flotann á þessu ári og ekki heldur á því næsta.

Flugfélagið á von á 72 þotum frá Airbus af gerðinni Airbus A350-1000 og Airbus A321neo og þá á félagið eftir að fá 88 þotur frá Boeing; 60 af gerðinni Boeing 777X, fimm Boeing 777 fraktþotur og 23 Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-9.

Þar að auki á Qatar Airways í viðræðum við Boeing vegna þeirra 737 MAX þotna sem pantaðar voru fyrir flugfélagið Air Italy sem Qatar Airways á hlut í.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga