flugfréttir
Laun starfsmanna Emirates hækka aftur í sömu upphæð
Airbus A380 risaþotur Emirates
Emirates ætlar að hækka laun allra starfsmanna upp í sömu upphæð sem þeir fengu útborgað í mars fyrir launalækkun vegna kórónaveirufaraldursins.
Flugfélagið ætlar að hækka launin aftur fyrir október næstkomandi og kemur þessi yfirlýsing aðeins nokkrum dögum
eftir að tilkynnt var að Emirates myndi fá 279 milljarða króna í styrk frá ríkisstjórn Sameinuðu arabísku furstadæmanna.
Nokkrir starfsmenn Emirates hafa sagt að þeir hafi fengið skilaboð frá stjórn flugfélagsins varðandi að þeir
munu snúa aftur í full laun í næsta mánuði.
Þetta gæti verið vísbending um að það versta sé yfirstaðið en flugrekstur Emirates varð mjög illa fyrir barðinu
á kórónaveirufaraldrinum þar sem flugfélagið hefur eingöngu stórar breiðþotur og risaflotur í flota sínum
og nær allt leiðarkerfið samastendur af flugi til fjarlægra áfangastaða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.