flugfréttir

Nýtt flugfélag í Nígeríu í loftið í haust

- United Nigeria Airlines byrjar með fimm Embraer-þotur

7. september 2020

|

Frétt skrifuð kl. 14:32

Embraer ERJ-145LR þota í litum United Nigeria Airlines

Nokkur ný flugfélög hafa tilkynnt um komu sína á markaðinn í heiminum undanfarna mánuði þrátt fyrir ástandið í flugiðnaðinum en það nýjasta, United Nigeria Airlines, stefnir á að fljúga fyrsta áætlunarflugið í Nígeríu síðar í haust.

United Nigeria Airlines, sem hefur höfuðstöðvar á flugvellinum í borginni Enugu, ætlar að hefja áætlunarflug með fimm flugvélum en fyrsta flugið hefur dregist töluvert á langinn.

Stofnandi flugfélagsins er nígeríski milljarðamæringurinn og kaupsýslumaðurinn Obiorah Okonkwo sem hefur nú fest kaup á fimm Embraer ERJ-145 þotum en þoturnar koma meðal annars úr flota bandaríska flugfélagsins ExpressJet sem flaug fyrir United Express.

COVID-19 heimsfaraldurinn er þó ekki ástæða þess að flugreksturinn hefur tafist hjá United Nigeria Airlines heldur framkvæmdir á flugvellinum sem hefur verið að mestu lokaður í heilt ár vegna endurbóta en flugvöllurinn opnaði á ný fyrir flugumferð á dögunum.

United Nigeria Airlines ætlar að fljúga milli helstu borga í landinu og mun félagið meðal annars fljúga á milli Enugu, Abuja, Lagos, Port Harcourt, Saba og Owerri.

Obiorah Okonkwo við eina af þeim Embraer-þotum sem hann hefur fest kaup á fyrir United Nigeria Airlines









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga