flugfréttir
Kári Kárason nýr forstöðumaður hjá Flugakademíu Íslands
Kári tekur við starfinu af Birni Inga Knútssyni sem hefur gegngt starfinu frá árinu 2019
Kári Kárason, flugstjóri hjá Icelandair, hefur tekið við stöðu forstöðumanns hjá Flugakademíu Íslands sem varð til við samruna Flugskóla Íslands og Flugakademíu Keilis fyrr á þessu ári.
Kári tekur við starfinu af Birni Inga Knútssyni sem hefur gegnt starfinu frá árinu 2019.
Kári er vel kunnugur starfsemi Keilis. Hann var einn af brautryðjendum atvinnuflugnáms í Keili árið 2007 og starfaði frá stofnun skólans til ársins 2013 sem skólastjóri Flugakademíunnar. Hann hefur starfað sem flugmaður, flugstjóri og þjálfunarstjóri hjá Icelandair frá árinu 1995, og þar áður bæði hjá Flugfélagi Íslands og Air Atlanta.
Starfsfólk og kennarar Flugakademíu Íslands og Keilis bjóða Kára velkominn aftur til starfa hjá skólanum og þakka Birni Inga fyrir sín störf að undanförnu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.