flugfréttir
Luis Gallego tekur við stjórn IAG af Willie Walsh
Willie Walsh (til vinstri) og Luis Gallego (til hægri)
Wille Walsh hefur formlega látið af störfum sem framkvæmdarstjóri yfir IAG (International Airlines Group), móðurfélagi British Airways, Iberia og Aer Lingus.
Wille Walsh hefur afhent stjórnartaumana yfir til hins spænska Luis Gallego sem tekur við stöðu framkvæmdarstjóra IAG en tilkynnt var um forstjóraskiptin í gær
á ársfundi fyrirtækisins.
Walsh, sem er fyrrum flugmaður, hafði einnig verið framkvæmdarstjóri yfir British
Airways frá árinu 2005 en tók við stöðu framkvæmdarstjóra IAG árið 2011 og hefur
móðurfélagið síðan þá keypt flugfélög á borð við Aer Lingus og Vueling og stofnað
flugfélagið LEVEL.
Gallego, sem tekur við stöðunni, kemur úr herbúðum Iberia, en hans bíða ýmis krefjandi verkefni á borð við að leysa deilur við verkalýðsfélög, sjá um niðurskurð og rekstraráætlun fyrir dótturfélög IAG auk þess sem hann þarf að taka við þeirri baráttu sem hefur ríkt á flugmarkaðnum gagnvart lágfargjaldafélögum á borð við Ryanair og easyJet.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.