flugfréttir
Flugprófunum á Boeing 737 MAX á vegum EASA lokið
Boeing 737 MAX 7, tilraunarþota Boeing
Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) hefur lokið við sínum prófunum á Boeing 737 MAX þotunum en þær fóru fram í Vancouver í Kanada í vikunni.
Boeing ferjaði eina af Boeing 737 MAX tilraunarþotum sínum þann 8. september sl. til Vancouver
sem var þota af gerðinni Boeing 737 MAX 7 og var henni flogið nokkrar tilraunarflugferðir sem stóðu yfir
frá 30 mínútum upp í tvær klukkustundir.
EASA mun á næstu dögum vinna úr þeim gögnum sem safnað var saman í þessum flugprófunum og fara
yfir niðurstöður þeirra og bera þær undir sérstaka nefnd sem kallast Joint Operation Evaluation Board (JOEB)
en sú nefnd var mynduð í sérstökum tilgangi til þess að gera úttekt á Boeing 737 MAX eftir flugslysin tvö sem áttu sér stað í fyrra og haustið 2018.
„EASA hefur unnið í nánu samstarfi við bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) og Boeing í þeim tilgangi
að koma Boeing 737 MAX vélunum aftur í umferð eins fljótt og auðið er en það gerist samt ekki fyrr en
við erum sannfærðir um að öryggi flugvélanna standist kröfur“, segir í yfirlýsingu frá EASA.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.