flugfréttir
Eins árs fangelsi fyrir að ljúga til um orsök flugslyss
- Flugmaðurinn fór í mál við loftskrúfuframleiðandann á fölskum forsendum
Slysið átti sér stað nálægt Fairbanks í Alaska þann 24. ágúst árið 2014
Bandarískur flugmaður frá Alaska var í seinustu viku dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að hafa logið að rannsóknaraðilum vegna flugslyss sem átti sér stað árið 2014 auk þess sem hann var fundinn sekur um að hafa hróflað við brakinu á slysstað til þess að villa um fyrir flugslysasérfræðingum.
Flugmaðurinn, Forest Kirst, flaug flugvél af gerðinni Ryan Navion þann 24. ágúst árið 2014 og voru með
honum þrír farþegar um borð en flugvélin brotlenti í fjallshlíð nálægt bænum Coldfoot í Alaska með þeim
afleiðinum að allir farþegarnir þrír slösuðust alvarlega en einn lést af sárum sínum 35 dögum síðar.
Fram kemur að Kirst hafi upphaflega greint frá því við flugslysasérfræðinga á vegum samgönguöryggisnefndar
Bandaríkjanna (NTSB) að flugvélin hefði lent í miklu niðurstreymi er hann flaug nálægt fjallgarði en tveimur
vikum síðar breytti hann framburði sínum og sagði að farþegi, sem sat frammí, hefði misst meðvitund eftir
að hafa tekið töflur við flugveiki og fallið fram fyrir sig á stýrið með þeim afleiðingum að flugmaðurinn missti
stjórn á flugvélinni.
Í lokaskýrslu vegna flugslyssins kemur hinsvegar fram að vindhraði á slysstað hafi mælst um 4 hnútar og
ekki voru nein ummerki um að niðurstreymi hafi verið í loftinu nálægt fjöllunum þennan dag.
Allir farþegarnir áttu að hafa misst meðvitund eftir að hafa tekið flugveikistöflur
Kirst sagði að hinir tveir farþegarnir hans hefðu einnig tekið sömu flugveikislyfið og áttu þeir einnig
að hafa misst meðvitund og var hann því sá eini sem var við meðvitund þegar slysið átti sér stað en
farþegarnir tveir sögðust ekki muna eftir því að hafa tekið neitt lyf og hvað þá misst meðvitund.
Tveimur mánuðum síðar skrifaði flugmaðurinn greinargerð þar sem hann sagði að orsök flugslyssins væri
sennilega hægt að rekja til þess að eitt skrúfublaðið á loftskrúfunni hefði losnað af á flugi.
Kirst, eiginkona farþegans sem lést í slysinu og hinir tveir farþegarnir, sem lifðu slysið af, ákváðu að hefja
dómsmál og fara í mál við fyrirtækið sem seldi flugmanninum loftskrúfuna auk þes sem ákveðið var
að fara í mál við loftskrúfuframleiðandann Hartzell.
Í málsgögnum kom fram að loftskrúfan hafi ekki uppfyllt öryggiskröfur og hefði ekki átt að leyfa
flugvélinni að fljúga vegna þessa en í lokaskýrslu vegna flugslyssins, sem NTSB gaf út árið 2017, kemur
fram að skrúfublaðið hefði losnað af við höggið er flugvélin brotlenti og er talið að skrúfublöðin hafi uppfyllt öll skilyrði er varðar öryggiskröfur.
Flugvélin reyndist of þung og undirbúningur fyrir flug af skornum skammti
Í skýslunni segir að orsök flugslyssins megi rekja til ófullnægjandi undirbúnings hjá flugmanninum auk
þess sem hann tók slæma ákvörðunartöku með því að fljúga flugvélinni of lágt yfir jörðu og í átt að hindrunum
og hækkandi landslagi.
Þá kom í ljós að flugvélin hafi verið of þung og var þyngd hennar nálægt hámarksflugtaksþunga þegar
slysið átti sér stað þrátt fyrir að hafa brennt töluvert af eldsneyti frá því hún hóf sig til lofts og hafi klifurgeta vélarinnar því verið mjög skert.
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) sviptu Kirst flugskírteininu í mars árið 2015 og sérstaklega á forsendum
þess að hann átti að baki fleiri flugslys, atvik, óeðlilega margar endurteknar á flugprófum auk þess
sem hann hafði nokkrum sinnum fallið á hæfnisprófi með flugdómara.
Þá segir að Kirst hafði verið fundinn sekur í desember árið 2017 fyrir að hafa í tvö skipti hróflað við aðstæðum
á slysstað og í eitt skipti hafði hann flogið án þess að hafa flugmannsskírteini í gildi.
Flugmaðurinn hafði atvinnuflugmannsskírteini og var flugvélin í eigu fyrirtæki hans, Kirst Aviation, en
flugvélin var í útsýnisflugi þegar slysið átti sér stað.
Flugmaðurinn, sem var 57 ára þegar slysið átti sér stað, var einnig flugkennari með réttindi til kennslu á einshreyfils flugvélar og hafði hann hann einnig áritun fyrir sjóflugvélar. Fram kemur að hann var með 4.759 flugtíma að baki.
Þá segir í skýrslunni að eina orsökina megi rekja til skorts á eftirliti hjá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) er varðar eftirlit með flugrekstri hjá fyrirtækinu Kirst Aviations.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.