flugfréttir
Fyrsta flugið á milli Teesside og Heathrow í heilan áratug
Eastern Airways mun fljúga daglega á milli Teesside flugvallarins og London Heathrow
Í gær var flogið fyrsta áætlunarflugið í meira en áratug á milli Teesside-flugvallarins í Englandi og Heathrow-flugvallarins í London.
Það er skoska flugfélagið Eastern Airways sem flaug þetta flug og mun félagið fljúga héðan í frá
daglega á milli Teesside-flugvallarins sem staðsettur er á miðhluta Englands, skammt suðvestur af
Middlesbrough, en félagið mun nota farþegaþotur af gerðinni Embraer E170 til flugsins.
„Fyrsta flugið í dag er aðeins byrjunin á öflugu samstarfi á milli Teesside flugvallarins,
Heathrow-flugvallarins og Eastern Airways eftir hlé sem varið hefur í áratug“, sagði John
Holland, framkvæmdarstjóri Heathrow-flugvallarins.
Embraer 170 þota frá Eastern Airways
Það er ekki oft sem að lítil flugfélög auka umsvif sín og það til eins af stærstu flugvöllum
heims og það einnig á erfiðum tímum í fluginu.
Robert Courts, flugmálaráðherra Bretlands, sagði í tilefni af fyrsta fluginu í gær að endurkoma
áætlunarflugs á milli Teesside og London Heathrow séu merki um að það sé einhver bati
í gangi í flugiðnaðinum í Bretlandi þrátt fyrir kórónaveirufaraldurinn og einnig að breska
ríkið sé að leggja sitt af mörkum til flugsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.