flugfréttir
Fyrsta ATR fraktflugvélin flýgur sitt fyrsta flug
- Fyrsta eintakið verður afhent til FedEx á þessu ári
Fyrsta ATR 72-600F flugvélin í flugtaki á flugvellinum í Toulouse í Frakklandi í gær
Í gær flaug fyrsta fraktútgáfan af ATR flugvélinni sitt fyrsta flug en flugvélin fór í fyrsta tilraunaflugið frá flugvellinum í Toulouse og stóð flugið yfir í tvær klukkustundir.
Áhöfn vélarinnar framkvæmdi nokkrar prófanir og þar á meðal á eiginleikum og afkastagetu vélarinnar
en fyrsta eintakið verður afhent til vöruflutningarisans FedEx sem pantaði 30 eintök af vélinni í nóvember
árið 2017.
Fraktflugvélin, sem nefnist ATR 72-600F, hefur hámarksflugtaksþunga
upp á 8.9 tonn og getur hún tekið 75.5 rúmmetra af frakt og hefur
hún mjög góða eiginleika til að flytja vörur á styttri flugleiðum og til flugvalla
sem hafa stuttar brautir.
Fram kemur að FedEx á von á því að fá fyrstu ATR 72-600F flugvélina afhenta á þessu ári en fyrirtækið hefur einnig tryggt sér kauprétt á 20 flugvélum til viðbótar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.