flugfréttir
Leggja 130 þotum þar sem vafi leikur á þyngd þeirra
Flugvélar Southwest Airlines á Midway-flugvellinum í Chicago
Bandaríska flugfélagið Southwest Airlines hefur tekið tímabundið úr umferð 130 farþegaþotur af gerðinni Boeing 737-800 vegna misvísandi upplýsinga um tómaþyngd vélanna.
Flugvélarnar verða kyrrsettar á meðan þær verða vigtaðar upp á nýtt
en rangar upplýsingar um þyngd vélanna skekkir upplýsingar um
flugtaksþyngd og aðra útreikninga varðandi afkastagetu þeirra og massamiðju sem getur haft í för með sér ófyrirsjáanlegar afleiðingar er kemur að hleðslu á frakt auk þess sem hámarksflugtaksþungi getur
farið yfir leyfileg mörk.
Southwest Airlines segir að misræmið nemi 75 pundum (lbs) sem samsvarar 34 kílóum og hefur verið ákveðið af varúðaráðstöfunum að leggja vélunum tímabundið.
Í janúar á þessu ári lýstu bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) yfir því að til
stæði að sekta Southwest Airlines um 538 milljónir króna þar sem í ljós
kom að félagið hafði flogið 21.505 flugferðir frá 1. maí til 9. ágúst árið 2018 með 44 þotum sem allar áttu það sameiginlegt að tómaþyngd vélanna var ekki í samræmi við gögn flugfélagsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.