flugfréttir
Fella niður eina af hverjum fimm flugferðum í október
Ein af hverjum fimm flugferðum sem Ryanair áætlaði að fljúga í október verða felldar niður
Ryanair hefur tilkynnt um enn frekari niðurskurð á flugáætlun sinni í næsta mánuði og ætlar félagið að fækka flugferðum um 20 prósent í október.
Þetta bætist ofan á annan 20 prósenta samdrátt sem lágfargjaldafélagið írska hafði tilkynnt um í ágúst fyrir september og október.
Ryanair segir að félagið neyðist til þess að skera niður leiðarkerfið
þar sem bókunum hefur fækkað verulega sem má rekja til ferðatakmarkanna
í flestum löndum vegna kórónaveirufaraldursins.
Miklar líkur eru á því að Ryanair þurfi að halda áfram að fækka
flugferðum í vetur og minnka þau umsvif sem félagið gerði ráð fyrir í vetraráætlun sinni sem nær frá nóvember fram í mars.
Ryanair er ekki eina lágfargjaldafélagið í Evrópu sem hefur þurft
að draga úr auknum umsvifum og bjartsýni varðandi batahorfur í fluginu
en Wizz Air hefur einnig dregið úr tíðni á ferðum í haust.
Ryanair segir að félagið sé mjög vonsvikið gagnvart sinnuleysi stjórnvalda
í ríkjum Evrópu er varðar aðgerðir til þess að koma flugiðnaðinum aftur
í gang og fordæmir aðgerðir er varða sóttkví og takmarkanir sem félagið segir að séu ekki að skila árangri.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.