flugfréttir

Lufthansa staðfestir endalok risaþotunnar

- Losa sig við allar Airbus A380 þoturnar og flestar A340 breiðþotur á förum líka

21. september 2020

|

Frétt skrifuð kl. 15:25

Lufthansa mun ferja síðustu átta risaþoturnar á næstunni í langtímageymslu

Lufthansa hefur tilkynnt að flugfélagið þýska ætli að losa sig við allar Airbus A380 þoturnar

Félagið staðfestir þar með bæði orðróm sem var í gangi varðandi að risaþoturnar væru á förum úr flota félagsins og ummæli framkvæmdarstjóra félagsins um að verið væri að íhuga að hætta með þoturnar.

Lufthansa pantaði Airbus A380 fyrst árið 2001 og fékk fyrstu þotuna afhenta árið 2010 en félagið hafði fjórtán risaþotur í flotanum en byrjaði að fækka þeim í vor við upphaf kórónaveirufaraldursins.

Í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér í dag segir að Lufthansa hafi ekki lengur nein áform um að nota þær Airbus A380 risaþotur sem eftir eru í áætlunarflugi og verða 8 risaþotur ferjaðar til langtímageymslu en félagið hætti með sex risaþotur í vor.

Lufthansa fékk fyrstu Airbus A380 risaþotuna í flotann árið 2010

Lufthansa ætlar einnig að hætta með einhverjar Airbus A340 breiðþotur og stendur til að ferja tíu Airbus A340-300 þotur í langtímageymslu sem verða afskráðar úr flota félagsins.

COVID-19 heimsfaraldurinn hefur bitnað hvað verst á farþegaflugi til fjarlægra áfangastaða og sér Lufthansa ekki fram á að vera komið með 50% aukningu í farþegaflugi fyrir lok ársins eins og gert var ráð fyrir þar sem eftirspurn eftir flugi hefur enn ekki náð sér á strik eins og vonast var til.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga